Hreinsað í Sandvík á árlegum strandhreinsunardegi

Blái herinn
Er­lend aðstoð í strand­hreins­un
13.09.2019
Blái herinn naut aðstoðar þyrlu gæslunnar í Húshólma
Blái herinn naut aðstoðar þyrlu gæslunnar í Húshólma
17.10.2019

Hreinsað í Sandvík á árlegum strandhreinsunardegi

Árlegur strandhreinsunardagur

Sendiráð Bandaríkjanna og Blái herinn bjóða þér að taka þátt í árlegum strandhreinsunardegi föstudaginn 13. september sem að þessu sinni fer fram í Sandvík á Reykjanesi.

„Sameinuð höldum við áfram að hreinsa fjörur Íslands og viljum við gjarnan bjóða ykkur að vera með í þessu frábæra verkefni þar sem Bandaríkin og Ísland taka höndum saman og gera umhverfið betra Hér er frábært tækifæri til eyða deginum úti í góðum félagsskap og sýna forystu í umhverfisvernd.  Þér og þínum er boðið sæti í rútu sem leggur af stað frá Ráðhúsi Reykjavíkur kl.09:00. Áætluð heimkoma er um kl. 15:00. Sendiráðið býður upp á hressingu á staðnum.

Mikilvægt er að staðfesta þátttöku sem fyrst á [email protected] svo hægt sé að áætla hvað við þurfum mikið af mat og drykk. Fyrir þá sem mæta á einkabílum er ætlunin að hittast kl. 10:00 við Sandvík (GPS hnit: 63°51’21.6″N 22°41’44.0″W). Við hvetjum fólk til að sameinast í bíla. Athugið að klæða ykkur eftir veðri og vindum og hafa góða vettlinga meðferðis.”

Undir þetta skrifa:

Jeffrey Ross Gunter, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi

Tómas Knútsson Bláa hernum