RÚV og Tóm­as Knúts­son verðlaunuð

Árni Sigfússon bæjarstjóri
Umhverfismál eru fyrir alla
15.09.2014
Tómas Knútsson og Guðni Th. Jóhannesson, Forseti Íslands
Forseti Íslands átti fund með Tómasi Knútssyni
24.01.2017

RÚV og Tóm­as Knúts­son verðlaunuð

Tómas J. Knútsson

Hjónin Magga Hrönn Kjartansdóttir og Tómas J. Knútsson taka við Náttúruverndarviðurkenninguna

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, veitti í dag í tilefni af Degi íslenskrar náttúru, RÚV – hljóðvarpi og sjónvarpi, fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Við sama tækifæri veitti hann Tómasi J. Knútssyni, Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.

Í rökstuðningi ráðherra vegna Náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti segir:

Tómas stofnaði Bláa herinn, sem eru frjáls félagasamtök hafa starfað síðan árið 1995 að umhverfisvernd í hafinu.  Þeir sem til þekkja vita að Tómas og aðrir í þessum þarfa og friðsama her hafa unnið brautryðjendastarf við hreinsun í höfnu

n landsins með óeigingjörnu sjálfboðastarfi. Má þar nefna að yfir 1200 tonn af rusli hafa verið hreinsuð úr náttúrunni og komið til endurvinnslu í þessu starfi.  Slíkar tölur segja þó aðeins litla sögu um mikilvægi starfsins sem Tómas og Blái herinn hafa unnið.  Það sem skiptir kannski mestu máli í þessu samhengi er að við Íslendingar vöknum til meðvitundar um að umgengni okkar um haf og strendur skiptir ekki síður máli en umgengni okkar á fastalandinu.

Í rökstuðningi dómnefndar fjölmiðlaverðlauna segir:

Umræða og umfjöllun um almannarétt og gjaldtöku fyrir aðgang að náttúruperlum hefur verið eins og rauður þráður í upplýsingamiðlun fjölmiðilsins (RÚV) á síðastliðnum tólf mánuðum, mikil að vöxtum, alhliða, upplýsandi og gagnrýnin.  Öll mikilvægustu sjónarmið málanna hafa komið fram en ekki verður gert upp á milli einstakra þátta, RÚV er tilnefnt til verðlaunanna í einu lagi.  Er það niðurstaða dómnefndar að sú umfjöllun samantekin verðskuldi fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins árið 2014 enda hafi mikilvægum hagsmunum og réttindum almennings hvað snertir náttúruna og umhverfið verið gerð ítarleg skil frá öllum hliðum málanna.

Aðrir sem tilnefndir voru til fjölmiðlaverðlaunanna voru:

Gunnþóra Gunnarsdóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu, fyrir greinaflokkinn Útivist og afþreying þar sem sjónum var beint að áhugaverðum náttúruperlum í öllum landshlutum á hnitmiðaðan, einfaldan og fallegan hátt.

In.Iceland fyrir að nýta sér Netið og gagnvirkni þess til að kynna sérstöðu Íslands fyrir umheiminum með því að skapa stafrænan vettvang til að birta og deila fagmannlega teknum ljósmyndum af íslenskri náttúru og lífríki.

Myndir: umhverfisraduneyti.is

Fréttatilkynning frá umhverfis- og auðlindarráðuneytinu.